Mikilvægar dagsetningar:
18. maí: Undankeppni    20. maí: Aðalkeppni


Sunday, May 21, 2006

Hard Rock Hallelujah!

Jæja, Finnarnir bara komu, sáu og sigruðu. Ég er mjög sátt við að Grikkir unnu ekki, því mér þóttu þeir bara dónalegir. Til dæmis sá maður búið á Silvíu í nýju ljósi þegar þeir búuðu á Litháen, sem áttu það sko ekki skilið...en hér koma úrslitin í heild sinni:

   Land Flytjandi  Lag  Stig 
1 Finnland Lordi Hard Rock Hallelujah   292
2 Rússland Dima Bilan Never let you go  248
3 Bosnía og Hersegóvína Hari Mata Hari Lejla  229
4 Rúmenía Mihai Traistariu  Tornero   172
5 Svíþjóð Carola Invincible   170
6 Litháen LT United We are the winners   162
7 Úkraína Tina Karol  Show me your love   145
8 Armenía André  Without your love   129
9 Grikkland Anna Vissi Everything   128
10 Írland Brian Kennedy Every song is a cry for love   93
11 Tyrkland Sibel Tüzün  Super star   91
12 Makedónía Elena Risteska  Ninanajna   56
13 Króatía Severina  Moja Stikla   56
14 Noregur Christine Guldbrandsen Alvedansen   36
15 Þýskaland Texas Lightning No no never   36
16 Lettland Cosmos I hear your heart   30
17 Sviss six4one If we all give a little   30
18 Danmörk Sidsel Ben Semmane Twist of love   26
19 Bretland Daz Sampson  Teenage life   25
20 Moldavía Arsenium & Natalia Gordienko  Loca  22
21 Spánn Las Ketchup  Bloody Mary   18
22 Frakkland Virginie Pouchin  Il était temps    5
23 Ísrael Eddie Butler  Ze hazman   4
24 Malta Fabrizio Faniello  I do   1

Og hér eru svo úrslitin í undankeppninni:

 Sæti Land  Flytjandi  Lag  Stig 
1 Finnland Lordi  Hard Rock Hallelujah  292 
2 Bosnía & Hersegóvína  Hari Mata Hari  Lejla  267 
3 Rússland  Dima Bilan  Never let you go  217
4 Svíþjóð  Carola  Invincible  214
5 Litháen  LT United  We are the winners  163 
6 Armenía  André  Without your love  150 
7 Úkraína  Tina Karol  Show me your love  146 
8 Tyrkland  Sibel Tüzün   Super Star  91 
9 Írland Brian Kennedy  Every song is a cry for love  79 
10 Makedónía  Elena Risteska  Ninanajna  76 
11 Pólland  Ich Troje  Follow my heart  70 
12 Belgía  Kate Ryan  Je t'adore  69 
13 Ísland  Silvía Nótt  Congratulations  62 
14 Albanía  Luiz Elliji  Zjarr e ftohte  58 
15 Kýpur  Annet Artani  Why angels cry  57 
16 Slóvenía  Anzej Dezan  Mr. Nobody  49 
17 Búlgaría  Mariana Popova  Let me cry  36 
18 Eistland  Sandra  Through my window  28 
19 Portúgal  Nonstop  Coisas de nada  26 
20 Holland  Treble  Amambanda  22 
21 Mónakó  Séverine Ferrer La coco-dance  14 
22 Hvíta-Rússland  Polina Smolova  Mum  10 
23 Andorra  Jennifer  Sense tu 

Mér finnst athyglisvert að Finnar fengu nákvæmlega jafnmörg stig í úrslitum og í undanúrslitum...

Skrifaði Eva Dögg Benediktsdóttir klukkan 19:09
Athugasemdir (1)



Friday, May 19, 2006

Spáin fyrir annað kvöld-frá Evu

  1. Grikkland
  2. Svíþjóð
  3. Noregur
  4. Bosnía
  5. Finnland
  6. Þýskaland
  7. Makedónía
  8. Rússland
  9. Rúmenía
  10. Úkraína
  11. Danmörk
  12. Lettland
  13. Litháen
  14. Armenía
  15. Tyrkland
  16. Malta
  17. Króatía
  18. Írland
  19. Ísrael
  20. Frakkland
  21. Bretland
  22. Sviss
  23. Spánn
  24. Moldavía

Svona lítur þetta út, mjög óvísindalegt allt saman. Reyndar kom ég sjálfri mér á óvart með vali á efstu sætunum, þar sem ég held sjálf ekkert geðveikislega upp á þau, en við sjáum bara hvernig fer...


Skrifaði Eva Dögg Benediktsdóttir klukkan 14:08
Tjáðu þig!



Spáin fyrir annað kvöld

Jæja, svona fór um sjóferð þá.  Silvía Nótt fór ekki áfram og ég get ekki sagt að ég sé hissa.  Ég átti allt eins von á því.  Hefði heldur ekki orðið hissa á því að sjá hana áfram.  En ég skellihló yfir atriðinu og þannig var markmiði mínu náð í ár.

Ég var að hugsa um að veðja á Grikkina en ég er að spá í að skipta um skoðun og spá Rúmenum sigri í ár.  Mér finnst líklegra að hressilegt danslag sigri heldur en tregafull reiði-ballaða.  Ég er ekkert sérstaklega heilluð af rúmenska laginu og fæ á tilfinninguna að ég sé komin í 5. bekkjarferðina mína til Ibiza þegar ég heyri það.  Rosalegt froðudiskótekslag.

En hérna kemur mín spá (ég er bara grand á því og raða öllum lögum í sæti).

  1. Rúmenía
  2. Grikkland
  3. Bosnía
  4. Svíþjóð
  5. Úkraína
  6. Finnland
  7. Noregur
  8. Armenía
  9. Rússland
  10. Þýskaland
  11. Makedónía
  12. Danmörk
  13. Malta
  14. Írland
  15. Tyrkland
  16. Króatía
  17. Bretland
  18. Litháen
  19. Lettland
  20. Sviss
  21. Ísrael
  22. Spánn
  23. Moldavía
  24. Frakkland

Ég tek það fram að þetta er spá, ekki ósk.  Ef ég fengi að ráða myndi Belgía vinna en það verður víst ekki úr þessu.  Af þeim lögum sem eru í úrslitum þá held ég með Finnum.  Finnski hatturinn var tvímælalaust flottasti búningurinn í gær.


Skrifaði Sunna klukkan 12:43
Athugasemdir (2)



Thursday, May 18, 2006

Kemst Silvía Nótt áfram?

Í dag er undankeppni Eurovision og útvarpsstöðvarnar eru að tapa sér í upphitun.  Stærsta spurningin er: Kemst Silvía Nótt áfram í kvöld?

Ýmsir Eurovision- og tónlistarspegúlantar hafa tjáð sig um málið og fyrir nokkrum mínútum gerði Óli Palli smá könnun í Popplandi.  Almenningi gafst kostur á að segja sína skoðun á Silvíu Nótt og niðurstaðan var athyglisverð.

Á hverju ári þegar Eurovision-manían nær hápunkti virðist sem Íslendingar tapi öllu veruleikaskyni og nánast á hverju ári erum við svo gott sem búin að sigra áður en keppnin fer fram.  Nægir að nefna Gleðibankann og If I had your love sem dæmi um þetta.  Flestir virðast sammála svona rétt fyrir keppni að íslenska framlagið nái langt og sigri jafnvel.

En nú virðist annað vera upp á teningnum.  Silvía Nótt superstar, kjaftfor, dónaleg, ögrandi í klæðaburði og umdeild persóna, hefur heldur betur hrist upp í landanum.  Af 13 sem hringdu inn í Poppland voru 7 sammála um að hún kæmist ekki áfram.  6 höfðu trú á að hún færi áfram en einhverjir af þeim sögðust ekki vera hrifnir af henni.

Tónlistarspegúlantarnir eru ekki heldur sammála um hvernig fer í kvöld.  Páll Óskar hefur trú á henni í kvöld en spáir henni 10.-20. sæti í úrslitum.  Óli Palli segir hún fari ekki áfram, Andrea Jóns heldur að hún fari áfram og Björgvin Halldórsson, Eyjólfur Kristjánsson og Sigrún Eva Ármannsdóttir sögðust ekki geta spáð fyrir um gengið.  Allt gæti hreinlega gerst.  Norrænu spekingarnir voru sammála um að hún færi áfram en umsagnaraðilarnir voru ekki hrifnir.

Ég held að íslenska framlagið í Eurovision hafi aldrei fengið jafnmikla athygli og núna, hvorki hér heima né úti, en á sama tíma er sigurvissan minni en oft áður.  Silvía Nótt er hreinlega það umdeild að fólk þorir ekki að spá neinu.  Hún er þekkt fyrir að vera ófyrirsjáanleg og óútreiknanleg þannig að hvað sem er gæti gerst.

Sjálf ætla ég ekki að spá.  Ég hef rokkað fram og til baka síðustu daga um hvort hún fari áfram eða ekki og ég held að við verðum bara að bíða og sjá hvað Evrópubúar (nú eða almættið sem hún ákallar í laginu) gera í kvöld.  Í fyrsta skipti geri ég engar kröfur.  Ég ætla bara að horfa og hafa gaman af.

Fyrir þá sem vilja endilega spá í spilin þá mæli ég með spánni hans Páls Óskars.  Hann hefur glettilega oft rétt fyrir sér með þessa keppni og spáði Jónsa t.a.m. 19. sæti árið 2004.


Skrifaði Sunna klukkan 14:43
Athugasemdir (1)



Wednesday, May 17, 2006

Rússland. Tyrkland, Úkraína

Rússland: Dima Bilan – Never let you go

Þetta lag vinnur á, mér fannst það ekkert sérstakt við fyrstu hlustun. Hins vegar er framburðurinn hjá Dima Bilan ekkert til að hrópa húrra fyrir og lagið er soldið einsleitt.

 

Einkunn: 3

Tyrkland: Sibel Tüzün – Super Star

Ok, þetta lag er nú bara Who do you think you are með Spice girls. Greyið virðist líka ekki með neitt ofsalega sleip í hliðar-saman hliðar...Lagið gengur voðalega mikið á sömu línunni...

 

Einkunn: 2

Úkraína: Tina Karol – Show me your love

 

Söngröddin minnir soldið á Shakiru, en hún er fullnefmælt fyrir mig. Ég fatta ekki alveg taktinn í laginu...Svo er hún með smá svona Ruslönu-takta undir lokin. Hins vegar gæti lagið alveg virkað á sviði.

 

Einkunn: 2


Skrifaði Eva Dögg Benediktsdóttir klukkan 21:49
Athugasemdir (1)



Mónakó, Makedónía, Pólland

Mónakó: Séverine Ferrer – La coco-dance

Söngkonan fer alveg óstjórnlega í taugarnar á mér, mér finnst hún svo sjálfumglöð eitthvað og ég er alveg sammála því að þetta er krakkalag.

 

Einkunn: 1

Makedónía: Elena Risteska - Ninanajna

Mér finnst lagið sjálft bara ágætt. Undirspilið í millikaflanum fínt, soldið Santana-legt og smá Pink-tónn í söngkonunni. Hins vegar fer í taugarnar á mér hvernig hún segir with you, það verður svona vitjú. Þetta finnst mér ágætis-austur-vesturbræðingur.

 

Einkunn: 3

Pólland: Ich Troje – Follow my heart

Þetta lag er ekki alveg að gera sig. Svo fer í taugarnar á mér að í myndbandinu tekur tekur söngvarinn aftur um magann á söngkonunni, eins og 2003. Stigagjöfin hjá mér ræðst aðallega af því að ég hlæ ennþá að Keine grenzen. Þeir sem hafa séð Loga Bergmann og Gísla Martein syngja það eru scarred for life-á góðan hátt þó, því þetta lag vekur alltaf upp hlátur...

 

Einkunn: 1


Skrifaði Eva Dögg Benediktsdóttir klukkan 21:05
Tjáðu þig!



Monday, May 15, 2006

Belgía, Írland, Kýpur

Belgía: Kate Ryan - Je t'adore

Uppáhaldið mitt!!! Æðislegt lag. Náði mér við fyrstu hlustun og í veðurblíðunni undanfarna daga hefur það verið á repeat þar sem ég keyri um með opna sóllúguna. Ég vona bara að það geri sig á sviði.

 

Einkunn: 5

Írland: Brian Kennedy - Every song is a cry for love

Írar eru búnir að senda sama lagið aftur og aftur (reyndar var ógeðið í fyrra öðruvísi…) Klósettpásulag undanúrslitanna. Og myndbandið er alveg yfirgengilega bjánalegt, þar sem allir vinir hans líta hann aðdáunaraugum þar sem hann syngur fyrir þá: Nei, takk oj bjakk.

 

Einkunn: 0

Kýpur: Annet Artani - Why angels cry

Lagið sjálft fór fyrir ofan garð og neðan hjá mér við fyrsta áhorf, því sílíkonið var bara jafnvel enn meira en hjá Ísrael í fyrra. Ég hef heldur aldrei fílað svona rembing eins og hjá Jessicu Simpson og mér finnst hún bara rembast lagið út í gegn.

 

Einkunn: 1


Skrifaði Eva Dögg Benediktsdóttir klukkan 15:29
Athugasemdir (1)



Andorra, Hvíta-Rússland, Albanía

Andorra: Jennifer - Sense tu

Mér finnst þetta bara leiðinlegt lag og ég fatta ekki myndbandið.

 

Einkunn: 1

Hvíta-Rússland: Polina Smolova - Mum

Úff. Viðlagið verður alveg ofsalega pirrandi. Polina reynir og reynir, en ekki nær hún mér…

 

Einkunn: 1

Albanía: Luiz Elliji - Zjarr e ftohtë

Lagið er ekkert sérstakt en Albanir eru búnir að taka sig aðeins á í myndbandagerð og eru komnir á fullt skrið í landkynningarmyndbandi eins og réðu ríkjum um miðjan níunda áratuginn. Ég vona bara að gömlu kallarnir verði líka á sviðinu, þá verður þetta ofsalega skemmtilega hallærislegt.

 

Einkunn: 2


Skrifaði Eva Dögg Benediktsdóttir klukkan 15:12
Athugasemdir (1)



Armenía, Búlgaría, Slóvenía

Armenía: Andre - Without your love

Armenía tekur í fyrsta skipti þátt í keppninni í ár. Mér finnst lagið ekkert sérstakt þó viðlagið sé ágætlega grípandi, en það fer í taugarnar á mér að maðurinn er bara með eina augabrún...

 

Einkunn: 2

 

Búlgaría: Mariana Popova - Let me cry

 

Ágætislag, en það er eiginlega of langt, því það verður leiðigjarnt. Undirspilið finnst mér hins vegar mjög flott.

 

Einkunn: 2

 

Slóvenía: Anžej Dežan – Mr. Nobody

 

Hmmm…greyið Slóvenar eru ekki vinsælir hjá austurblokkinni og ég á ekki von á að það breytist í ár. Söngvarinn þeirra er bara aðeins of ýktur og þetta hár er nú bara eins og Mr. Jay í America’s next top model. Fatnaðurinn í myndbandinu minnir mig að einhverju leyti á framlag Makedóníu frá 2004, Life með Tose Proeski

 

Einkunn: 2

 


Skrifaði Eva Dögg Benediktsdóttir klukkan 14:49
Athugasemdir (2)



Sunday, May 14, 2006

Norræna ráðið-lögin í úrslitum

Hér má svo sá spá norræna ráðsins fyrir þau lög sem komin eru í úrslit:

 

 Samtals

 Danmörk

Svíþjóð 

Ísland 

Finnland 

Noregur 

Sviss 

 6

Moldavía

 3

0

Ísrael 

 8

Lettland 

 8

Noregur 

 19

Spánn 

 12

Malta 

 14

Þýskaland 

 16

Danmörk 

 20

Rúmenía 

 20

4

Bretland 

 13

Grikkland 

 20

Frakkland 

 8

Króatía 

 12


Skrifaði Eva Dögg Benediktsdóttir klukkan 15:52
Tjáðu þig!


Next Page

 


<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

 

Blogdrive
Site Meter